Kæra á ákvörðunum lögreglustjóra
Unnt er að kæra til ríkissaksóknara ákvörðun lögreglustjóra um að vísa frá kæru, hætta rannsókn, fella niður mál og falla frá saksókn. Skal það gert innan eins mánaðar frá því að viðkomandi var tilkynnt um hana. Miðaða er við dagsetningu á bréfi lögreglustjóra. Skal ríkissaksóknari taka afstöðu til kærunnar innan tveggja mánaða frá því að ákvörðun lögreglustjóra var tekin.
Kæra skal vera skriflega og skal þar koma fram málsnúmer lögreglu. Ekki gilda neinar formreglur um kæru til ríkissaksóknara en þó er rétt að þar komi fram hvaða kröfur séu gerðar og helstu sjónarmið kæranda. Þá er gott að ljósrit af bréfi lögreglustjóra fylgi kærunni. Eftir að ríkissaksóknara berst kæran skrifar hann lögreglustjóra bréf og óskar eftir afriti af málsgögnum. Ennfremur er kæranda send staðfesting á móttöku kærunnar. Hafi maður fengið réttarstöðu sakbornings við rannsókn lögreglu er honum send tilkynning um kæruna. Að lokinni skoðun ríkissaksóknara á málsgögnum tekur hann rökstudda ákvörðun í málinu og tilkynnir málsaðilum um niðurstöðu sína.

