Kærur á hendur lögreglu
Kærur á hendur lögreglu
Samkvæmt 35. gr. lögreglulaga rannsakar ríkissaksóknari kærur á hendur lögreglu fyrir ætlað refsivert brot við framkvæmd starfa. Skal beina skriflegri kæru til ríkissaksóknara og fer hann með rannsókn málsins.
Kærandi getur farið á næstu lögreglustöð og látið taka af sér skýrslu sem lögregla skráir niður og er hún þá send ríkissaksóknara í samræmi við ofangreint.

