Kynferðisbrot
Kynferðisbrot
Starfshópur um meðferð kynferðisbrotamála
Árið 2001 skipaði ríkissaksóknari starfshóp til að kanna meðferð nauðgunarmála, rannsókn og saksókn. Nefndin skilaði í mars 2002 skýrslu um störf sín en í henni er m.a. að finna tillögur hópsins að verklagsreglum um rannsókn nauðgunarmála.
Árið 2006 skipaði ríkissaksóknari starfshóp til að kanna meðferð nauðgunarmála árunum 2002 til og með 2006. Um var að ræða framhald ofangreindrar könnunar. Nefndin skilaði í maí 2007 skýrslu um störf sín.
Málshraðareglur nauðgunarmála
Í maí 2007 skilaði starfshópur, sem ríkissaksóknari skipaði, skýrslu eftir að hafa kannað afdrif allra nauðgunarmála sem bárust embættinu á 5 ára tímabili frá 1. janúar 2001 til ársloka 2006, alls 156 mál. Til samanburðar lágu fyrir tölur næstu 5 ára á undan, þ.e. frá 1997-2001 en þá bárust embættinu samtal 80 slík mál.
Nauðgunarmálum hefur fjölgað jafnt og þétt á sl. 10 árum. Við athugun nefndarinnar kom í ljós að frá 1997 hefur rannsóknartími nauðgunarmála hjá lögreglu verið að lengjast en hann var að meðaltali 210 dagar 2001-2006. Með rannsóknartíma er átt við tíma frá upphafi rannsóknar þar til mál er sent ríkissaksóknara.
Ríkissaksóknari ákvað, í samræmi við tillögu nefndarinnar og að höfðu samráði við lögreglustjóra, að setja fyrirmæli um meðferðartíma nauðgunarmála, RS 2/2008. Þar er mælst til að verði 60 dagar hjá lögreglu. Ætlast er til að ákvörðun um saksókn liggi fyrir innan 30 daga hjá ríkissaksóknara.
Þess er að vænta að með samstilltu átaki lögreglu, dómstóla og ríkissaksóknara verði unnt að stytta málsmeðferðartíma nauðgunarmála hér á landi en til þess eru gildar ástæður.

