Um embættið

Meðferð kærumáls Erlu Bolladóttur á hendur lögreglumanni er lokið

5/10/13

Fréttatilkynning

 

Ríkissaksóknari hefur lokið meðferð kærumáls Erlu Bolladóttur (kærandi) á hendur lögreglumanni (kærði) fyrir ætlað kynferðisbrot um mitt ár 1976, þá er Erla sætti gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar á Guðmundar- og Geirfinnsmálum, en kærði starfaði þá sem rannsóknarlögreglumaður og vann að rannsókn málanna. Með hliðsjón af því sem fram kemur í kæruskýrslu gat sú háttsemi sem þar er lýst varðað við 194. gr. og/eða 197. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940. Ríkissaksóknari tók skýrslur af kæranda og kærða auk þess að fara yfir og kynna aðilum bókanir í dagbók fangelsisins Síðumúla 28 og önnur gögn er tengdust gæsluvarðhaldsvist kæranda. Kærði neitar alfarið sök.

 

Ljóst var frá upphafi að kært kynferðisbrot er fyrnt. Þá liggur fyrir að kærandi tjáði sig ekki við neinn um ætlað kynferðisbrot fyrr en að mörgum árum liðnum, en engin vitni voru að ætluðu broti.

 

Með hliðsjón af framangreindu hefur rannsókn málsins verið hætt með vísan til 4. mgr. 52. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008.

 

Reykjavík 10. maí 2013

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari

 

 



 

 

 

 

 

Til baka Senda grein