Vegna kæru á meðferð persónuupplýsinga
Eftir að hafa farið vandlega yfir svör innanríkisráðuneytisins við fyrirspurn ríkissaksóknara, vegna kæru um meðferð persónuupplýsinga, sem bárust ríkissaksóknara með bréfi dagsettu 20. þ.m., taldi ríkissaksóknari nauðsynlegt að fá frekari gögn og upplýsingar frá innanríkisráðuneytinu, áður en endanleg ákvörðun verður tekin um það hvort málinu verði vísað til lögreglurannsóknar.
Var beiðni þess efnis send innanríkisráðuneytinu með bréfi dagsettu í dag.
Reykjavík, 31. janúar 2014
Sigríður J. Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari