Lögreglustjórar

Lögreglustjórar

Samkvæmt gildandi skipan fara ríkissaksóknari og lögreglustjórar, þar með talinn ríkislögreglustjórinn, með ákæruvaldið í landinu í öllum megin atriðum.

Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds og sæta lögreglustjórar, 16 talsins að meðtöldum ríkislögreglustjóranum, eftirliti og leiðsögn af hálfu ríkissaksóknara í störfum sem ákærendur og handhafar ákæruvalds.  

Hjá ríkislögreglustjórarnum og lögreglustjóraranum á höfðuborgarsvæðinu voru skipaðir saksóknarar, einn hjá hvoru embætti, þeim til aðstoðar en annars eru löglærðir fulltrúar lögreglustjórum til aðstoðar við framkvæmd ákæruvalds. Staða saksóknara hjá ríkislögreglustjóranum var flutt þaðan þegar efnahagsbrotadeild sameinaðist embætti sérstaks saksóknara 1. september 2011.

Lögreglustjórar fara með ákæruvald í öllum sérrefsilagabrotum og tilteknum hegningarlagabrotum. Ákvarðanir þeirra um að vísa frá kæru, hætta rannsókn og fella niður mál eru kæranlegar til ríkissaksóknara.

 


smallheaderimage

Útlit síðu:

Þetta vefsvæði byggir á Eplica