Um kærur og kvartanir á hendur starfsmanni lögreglu
RS: 13/2017
Háttsemi í starfi lögreglu:
Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu tekur við erindum frá borgurum sem varða kærur á hendur starfsmanni lögreglu um ætlað refsivert brot í starfi og um kvörtun vegna ætlaðrar ámælisverðar starfsaðferðar eða framkomu starfsmanns lögreglu í starfi í samskiptum við borgara. Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu greinir slík erindi og kemur þeim til viðeigandi meðferðar hjá héraðssaksóknara, ríkissaksóknara, lögreglustjóra og/eða ríkislögreglustjóra, eftir því sem við á.
Nú leitar borgari á lögreglustöð og telur á sér brotið af hálfu lögreglu og skal þá starfsmaður lögreglu, sem ekki hefur komið að máli viðkomandi borgara sem erindi lýtur að, veita leiðbeiningar um nefnd um eftirlit með störfum lögreglu, aðsetur nefndarinnar, netfang o.fl.
- Netfang: nel@nel.is
- Aðsetur: Nefnd um eftirlit með störfum lögreglu
Skuggasundi 3
101 Reykjavík - Símanúmer: 545-8800
Nú berst lögreglustjóra ábending eða tilkynning um meint refsivert brot starfsmanns lögreglu, sem ætla má að bregðast þurfi skjótt við vegna rannsóknarhagsmuna, eða af öðrum ástæðum, og skal lögreglustjóri þá án tafar koma viðeigandi upplýsingum á framfæri við héraðssaksóknara, eða eftir atvikum ríkissaksóknara. Í slíkum tilvikum tilkynnir héraðssaksóknari eða ríkissaksóknari til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu ef rannsókn máls hefur hafist vegna meints brots starfsmanns lögreglu. Hið sama á við ef slík ábending eða tilkynning berst til héraðssaksóknara
Berist héraðssaksóknara eða lögreglustjóra tilkynning um að starfsmaður lögreglu hafi viðhaft ámælisverða starfsaðferð eða framkomu í starfi eða um að borgari sé ósáttur við almenna starfshætti lögreglu skal án tafar framsenda nefndinni tilkynninguna til meðferðar.
Lögreglustjóri sem hefur móttekið tilkynningu frá borgara, sem framsenda ber nefnd um eftirlit með störfum lögreglu, eða er með öðrum hætti kunnugt um að slík tilkynning er komin fram, skal hlutast til um að tryggja sönnunargögn eftir því sem við á, s.s. með varðveislu mynd- og hljóðupptaka, eða annarra muna sem hafa sönnunargildi, eða með skráningu upplýsinga, m.a. um atvik, tækjabúnað eða vitni, sem tengjast máli og nýst getur við rannsókn eða aðra meðferð máls sem fellur undir fyrirmæli þessi.
Um málsmeðferð fer að öðru leyti eftir VII. kafla lögreglulaga og reglum um meðferð á kæru á hendur starfsmanni lögreglu og kvörtunar vegna starfsaðferða eða framkomu lögreglu í samskiptum við borgara, sbr. viðauki I og II með fyrirmælum þessum.
Refsivert brot starfsmanns lögreglu utan starfs lögreglu:
Tilkynning til ríkissaksóknara
Berist lögreglu kæra um refsivert brot starfsmanns lögreglu utan starfs eða vakni rökstuddur grunur um slíkt brot ber þegar að tilkynna það ríkissaksóknara. Ekki skal beina tilkynningu um slík meint brot til nefndar um eftirlit með störfum lögreglu.
Vanhæfi lögreglustjóra til meðferðar máls
Brot skal að jafnaði rannsaka í umdæmi þar sem talið er að það hafi verið framið og ber lögreglustjóri ábyrgð á rannsókn sem fram fer í umdæmi hans. Hafi ætlað brot verið framið í umdæminu sem hinn grunaði starfar í ber lögreglustjóra að taka afstöðu til þess hvort hann sé vanhæfur til meðferðar málsins, sbr. 26. gr. laga nr. 88/2008 um meðferð sakamála. Hafi hið ætlaða brot hins vegar verið framið í öðru umdæmi en hinn grunaði starfar í ætti lögreglustjóri, sem ábyrgð ber á rannsókn samkvæmt framangreindu, venjulega ekki að vera vanhæfur til meðferðar málsins.
Sigríður J. Friðjónsdóttir
ríkissaksóknari