Um embættið

Rannsókn ríkissaksóknara vegna aðgerða lögreglu í og við Hraunbæ 20 í Reykjavík að morgni 2. desember 2013

12/3/13

FRÉTTATILKYNNING


Ríkissaksóknari hefur, á grundvelli 1. mgr. 35. gr. lögreglulaga nr. 90/1996, hafið rannsókn á atvikum og aðgerðum lögreglu í fjölbýlishúsinu að Hraunbæ 20, Reykjavík, að morgni 2. desember sl., en maður sem lögregla hafði afskipti af, lést í kjölfar aðgerðanna vegna skotsára sem lögregla veitti honum. Við rannsókn sína mun ríkissaksóknari, með aðstoð lögreglumanna við embætti sérstaks saksóknara, sbr. 3. mgr. 35. gr. lögreglulaga, taka skýrslur af lögreglumönnum sem voru á vettvangi. Farið verður yfir aðgerðir lögreglu með hliðsjón af almennum hegningarlögum, lögreglulögum og verklagsreglum ríkislögreglustjóra þegar um beitingu skotvopna er að ræða.

Atriði sem varða forsögu mannsins sem lést, handhöfn og meðferð hans á skotvopni, sem og annað er hann varðar, er á forræði lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu að rannsaka, allt eftir því sem hann telur tilefni til.

  

Reykjavík, 3. desember 2013

Sigríður J. Friðjónsdóttir

ríkissaksóknari

Til baka Senda grein