Um embættið

Vegna kæru á meðferð persónuupplýsinga

2/7/14

Með bréfi innanríkisráðuneytisins dagsettu 6. þ.m. bárust ríkissaksóknara umbeðnar upplýsingar og gögn vegna kæru um meðferð persónuupplýsinga. Með bréfi dagsettu í dag hefur ríkissaksóknari framsent kæruna, ásamt gögnum sem henni fylgdu og gögnum sem borist hafa frá innanríkisráðuneytinu, til viðeigandi meðferðar við embætti lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu.

 

Reykjavík, 7. febrúar 2014

Sigríður J. Friðjónsdóttir

ríkissaksóknari

Til baka Senda grein