Um embættið

Sektir fyrir brot gegn sóttvarnalögum vegna COVID-19

3/27/20

Vegna ákvörðunar heilbrigðisráðherra um opinberar sóttvarnaráðstafanir í samræmi við sóttvarnalög nr. 19/1997, sem eru viðbrögð við COVID-19 heimsfaraldrinum, hefur ríkissaksóknari nú sent öllum lögreglustjórum á landinu fyrirmæli vegna brota á reglum heilbrigðisráðherra sem fjalla um samkomubann, lokun samkomustaða og starfsemi, sem og um einangrun smitaðra og um sóttkví.

Við vinnslu fyrirmælanna hefur m.a. verið litið til þess hvernig ríkissaksóknaraembætti á Norðurlöndunum hafa brugðist við þeim aðstæðum sem skapast hafa vegna COVID-19.

Að meginstefnu til byggja fyrirmæli ríkissaksóknara á því að sektum verði beitt vegna brota á sóttvarnalögum og reglum settum samkvæmt þeim. Sektarfjárhæðir fara eftir alvarleika hvers brots.

Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari segir mjög mikilvægt að það sé alveg skýrt til hvaða úrræða lögregla getur gripið ef farið er gegn ákvörðunum heilbrigðisráðherra um sóttvarnaáðstafanir. Enn sem komið er hafi tilkynningar til lögreglu vegna brota á opinberum sóttvarnaáðstöfunum verið fáar, sem sé til marks um samstöðu í samfélaginu um þýðingu og mikilvægi þessara aðgerða.

Fyrirmæli ríkissaksóknara nr. 4/2020 um brot gegn sóttvarnalögum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. 19. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, vegna heimsfaraldurs COVID-19, má nálgast hér eða með því að smella á hnappinn fyrirmæli.

Til baka Senda grein