Um embættið

Uppfærð sektarfyrirmæli vegna Covid-19

2/23/21

Ríkissaksóknari hefur gefið út ný/uppfærð fyrirmæli um brot gegn sóttvarnarlögum og reglum settum samkvæmt þeim, sbr. 19. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, sbr. lög nr. 2/2021, vegna heimsfaraldurs COVID-19, þar sem uppfærðar eru tilvísanir til nýrra ákvarðana heilbrigðisráðherra þar að lútandi. Um er að ræða reglugerðir nr. 161/2021 og 190/2021. Fyrirmælin taka gildi á morgun.

Helstu breytingarnar varða sektir vegna brota á skyldum við komu til landsins, sbr. rgl. 161/2021, þ.e. brot gegn skyldu til að framvísa neikvæðu PCR-vottorði, brot gegn skyldu til að fara í sýnatöku á landamærastöð og brot gegn skyldu til að dveljast í sóttvarnarhúsi og skyldum sem einangrun þar felur í sér.

Vakin er athygli á því að framvísun falsaðs PCR-vottorðs varðar við ákvæði 155. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 og sætir því ákæru.

Fyrirmæli ríkissaksóknara nr. 1/2021 má nálgast hér.

Til baka Senda grein